Einkaþjálfun




Tek að mér jafnt einstaklinga og hópa (mest 4 saman í tíma) í einkaþjálfun. Starfa bæði í World Class í Laugum og á Seltjarnanesi.

Námskeið: Leiðbeinenda námskeið í stafgöngu, skyndihjálp, fjöldi endurmentunar námdkeiða á vegum World Class. Eins hef ég tekið leiðtoga- og samskiptaþjálfun hjá Dale Carnegie.

Árið 2007 þá gekk ég á fjallið Kilimanjaro í Tanzaniu sem er 5,891,8 metra hátt og að auki mánuði seinna gekk ég 63 km eða eitt og hálft maraþon í New York svo kallaða Avon Walk For Breast Cancer , þetta er ganga sem gengin er til styrktar rannsóknum á brjósta krabbameini. Þessa göngu gekk ég með öðrum tuttugu og tveimur konum . Við stofnuðum styrktarfélagið Göngum sama og höfum styrkt grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini.

Áhugamál: Líkamsrækt, útivist, hlaup, þjóðfélagsmál og mannrækt almennt og síðast en ekki síst fjölskyldan mín.

Sérhæfing: Alhliða líkamsþjálfun, ástandsmat, markmiðasetning, lífstílsbreyting og stafaganga.


Netfang: gudny@stafganga.is
http://www.stafganga.is
Sími: 8251365
Deild: Einkaþjálfarar
Staðsetning: Laugar og Seltjarnarnes


Stafganga@stafganga.is Símar 6168595 og 6943571
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is