
Val á stafgöngustöfum.
Mikilvægt er að hver og ein/n velji sér stafi við hæfi (sjá töfluna hér að neðan).
Við val á stöfum þarf að hafa eftirfarandi grundvallar atriði í huga:
• Líkamlegt ástand, hafa ástand háls og herða sérstaklega í huga. Ef um mikla vöðvabólgu er að ræða á þessu svæði þurfa stafirnir að vera lægri og skaftið úr fiberefni.
• Velja stafi í réttri hæð miðað við líkamshæð þína: Margfalda hæð þína með 0,68 eða máta þá við líkamann þannig að olnboginn er í rúmmlega 90 gráðum, hugsa það eins og vatn geti runnið niður handleggina. Mikilvægt að hafa axlir slakar þegar stafirnir eru mátaðir.
• Haldfangið þægilegt og falli vel að lófanum. Hægt er að fá stafi með korkhaldfangi sem er mýkra en plastið.
• Ólarnar eiga að vera stillanlegar og falla þétt um úlnliðinn. Ekki er nóg að hafa venjuleg ól (eins og á skíðastöfum), höndin er þá laus í ólinni og það hamlar armsveiflunni.
• Stafurinn getur verið úr fiberefni eða áli. Eftir því sem er hærri % af fiberefni verður stafurinn léttara og sveigjanlegra og meiri dempun í honum. Þegar við þrýstum stöfunum niður í jarðveginn kemur högg upp í liði handleggsins sem fiberefnið dregur úr. Ál stafur er ekki eins sveigjanlegt og er þyngra. Til eru einnig stafir með blöndu af fiber og áli og henta þeir vel fyrir eldriborgara, þar sem þeir beyta ekki stöfunum af eins miklum krafti og yngra fólk og hökkið því minna upp í handleginn.
• Gúmmískór eru nauðsynlegir þegar gengið er á malbiki þar sem þeir draga úr höggi og eru einnig hljóðeinangrandi.
• Sérstaklega mótaður oddur er á stöfunum sem notaður er á allan jarðveg og í snjó oghálku þar sem hann gefur góða spyrnu.
Athuga að margfalda hæð þína með 0,68 þegar þú velur þér stafi eða þarft að stilla þá í rétta hæð.
Dæmi: 155 sm x 0,68 = 105,4 stafir 105 sm háir 180 sm x 0,68 = 122,4 stafir 125 sm háir
(ef viðkomandi er mjög slæm/slæmur í öxlum er betra að velja 120 sm)
Líkamshæð (sm) / Hæð stafa (sm).
145- 150 / 100
150 - 157 / 105
158 - 166 / 110
167 - 172 / 115
173 - 179 / 120
180 - 187 / 125
188 - 195 / 130
196 - 202 / 135
|