Stafganga

Stafganga er ganga þar sem gengið er með sérhannaða stafi og hentar flestum sem geta gengið. Stafgöngu er hægt að stunda hvar sem er og hvenær sem er óháð veðri, aldri, kyni eða líkamlegu ástandi.


Söguleg þróun
Árið 1997 var farið að markaðssetja stafgöngu fyrir almenning í Finnlandi. Áður höfðu skíðagöngumenn í Finnlandi notað stafgöngu á sumrin til þess að halda líkamanum í formi. Svíðjóð, Noregur, Sviss, Austurríki og Þýskaland ásamt Íslandi eru þjóðir sem hafa fyrstar allra tileinkað sér þessa íþrótt. Nú er talið að um að ein milljón manna í heiminum stundi stafgöngu a.m.k. einu sinni í viku.

Hér á Íslandi hóf tilraunahópur Kvennahlaups ÍSÍ stafgöngu í júní 2003 og vakti verðskuldaða athygli á göngu sinni.

Í framhaldinu hefur ÍSÍ staðið að menntun stafgönguleiðbeinenda sem eru í því að kynna stafgönguna og halda námskeið fyrir almenning (sjá stafgöngunámskeið í Lagardalnum).

Nýlega gaf ÍSÍ út fræðslubæklinginn, Stafganga góð leið til heilsubótar og er hann ókeypis og verður öllum aðgengilegur.



 
Áhrif Stafgöngu á líkamann
Í stafgöngu brennum við 20% meira en í venjulegri gönguþjálfun. Hjartsláttur per/slag á mín hækkar og    við  aukum loftháðaþjálfun og vöðvaþol. Við styrkjum vöðva í efri búk 40% meira en í venjulegri göngu og    drögum úr spennu og vöðvabólgu í hálsi og herðum. Stafgangan eykur liðleika og eykur jafnvægi. Bætir    skap og andlega heilsu, dregur úr þunglyndi og þreytu.

Stafganga er góð leið í endurhæfingu eftir meiðsli eða sjúkdóma í samráði við fagaðila.
Stafgöngubæklingur ÍSÍ og Ísland á iði - Smelltu hér


                                                                                      
                                  
Stafganga@stafganga.is Símar 6168595 og 6943571
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is