| Haldin verður stafgöngukynning þann 23. september kl. 20:00 í verslun 66°Norður, Faxafeni 12. Guðný Aradóttir stafgönguleiðbeinandi mun kynna tækni stafgöngu og uppruna hennar, hvernig ganga á með stafi og hversu háir þeir eiga að vera. Þetta er því tilvalið tækifæri til að koma og fræðast um stafgöngu.
Til gamans má geta að hægt er að stunda stafgöngu hvar sem er hvort heldur sem er í borg, láglendi eða til fjalla.
Staðsetning: Verslun 66°Norður, Faxafeni 12
Dagsetning: Miðvikudagur, 23. september
Tími: kl. 20:00
Um 66°Norður
Sjóklæðagerðin - 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1926, og hefur um áratuga skeið verið leiðandi í framleiðslu á sjó- og vinnufatnaði. Undanfarinn áratug hefur fyrirtækið vaxið hratt með aukinni framleiðslu og sölu á fjölbreyttum fatnaði til útivistar og fengið margvísleg verðlaun fyrir hönnun sína og markaðsstarf síðastliðin ár. |